Smáráð: Notaðu - til að afmarka orðhluta. Til að fá /lː/ í staðinn fyrir /tl/, skrifaðu „l+l“.

Hvernig nota ég þetta?

Um þetta verkfæri

Hljóðritarinn er hugsaður sem hjálpartæki við hljóðritun nútímaíslensku. Úttak tækisins miðast við staðalíslenskan framburð og tekur það ekki tillit til mállýskutilbrigða (en gæti gert það í framtíðinni). Þar sem íslensk stafsetning er að mestu leyti reglubundin breytir tækið venjulegri íslensku yfir í IPA-hljóðritun á kerfisbundinn hátt samkvæmt framburðarreglum málsins, en eins og kunnugt er eru undantekningar frá þessum reglum og reynt hefur verið að gera grein fyrir þeim helstu þar sem á við.

Notkun

Textinn sem á að hljóðrita er sleginn inn í textareitinn. Um leið og slegið er inn birtist hljóðritun hægri megin. Fyrir neðan gráa reitinn eru nokkrir valkostir. Velja má á milli tvenns konar klofa, sem eru yfirleitt notaðir svona:

Svo má sleppa klofum með því að velja „Engir klofar“. Þú getur líka slökkt eða kveikt á áherslumerkjum, en kveikt er á þeim nema annað sé valið. Athugið að tækið setur áherslumerki ekki inn sjálfkrafa í samsett orð, nema í fyrsta orðhlutann. Mörg samsett orð eru skráð í tækinu en það vantar ákveðnar orðmyndir. Því er hægt að þvinga tækið til að túlka orð sem samsett með bandstrikum:

Bandstrik má einnig nota við ritun á klasanum ll, sem má bera fram ýmist sem /tl/ eða /lː/. Þar sem langflest orð á íslensku með ll eru borin fram með /tl/ framburði er tækið stillt þannig að sá sé sjálfgefni framburðurinn. Margar undantekningar eru skráðar í kerfinu en ekki allar, og til eru mörg tvíræð orð, þannig að til að fá /lː/ alltaf út er skrifað l+l, t.d.:

Takmarkanir

Fyrir utan ofangreindu takmarkanirnar er vert að taka það fram að þetta verkfæri sé ætlað bara sem hjálpartæki við hljóðritun og gæði hljóðritunar séu ekki tryggð. Til eru villur í kerfinu en reynt hefur verið að lágmarka þær sem mest. Ef hljóðritun kemur út sem þykir einkennileg eða vitlaus getur þú tilkynnt vandann með því að smella á „Tilkynna villu“. Þá verður reynt að laga það sem er að. Þú getur líka notað þennan möguleika til að tilkynna um að undantekning sé ekki skráð í kerfinu.

Farðu vandlega yfir hljóðritunina sem kemur út ef þú ætlar að nota hana í einhvers konar verkefni.